20.11.2023 | 23:42
Börn og stríð
Eitt hið skelfilegasta við stríðin milli Rússa og Úkrainumanna, Ísraela og Hamas, er sú staðreynd að saklaus börn eru fórnarlömb þeirra.
Á hverjum degi sjáum við í sjónvarpi sárþjáð andlit palestínskra barna, ef marka má tölur frá Gasasvæðinu hafa þúsundir þeirra fallið í árásum Ísraela.
Eins og það sé ekki nóg eru Hamasliðar sagðir hafa drepið smábörn með bestu lyst og rænt nokkrum þeirra, sumum án foreldra sem þeir höfðu myrt.
Og Rússar eru ásakaðir um að hafa rænt tugþúsundum, ef ekki hundruð þúsundum, úkraínskra barna.
Þýski Gyðingurinn og nóbelshafinn Nelly Sachs orti áhrifamikinn kvæðabálk um helförina, hluti hans fjallar um örlög barnanna í gereyðingarbúðunum:
Ó nótt hinna grátandi barna!
Nótt barnanna sem merkt eru dauðanum!
Svefninn hefur ekkert opið hlið lengur.
Skelfilegar varðkonur hafa
tekið stöðu mæðranna,
þær hafa spennt hin svikula dauða í vöðvum sér,
sá honum í veggi og bjálka-
alls staðar klekjast egg út í hreiðri hins illa
smábörnin sjúga angist í stað móðurmjólkur.
Heimsbyggðin verður að krefjast þess að börnunum verði hlíft!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.11.2023 kl. 11:06 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.