OBAMA GEGN MCCAIN: HIĐ PÓSTMÓDERNA GEGN HINU MÓDERNA

 

Oft er sagt ađ tímaskeiđ hins móderna hafi einkennst af ađ sjálf manna voru gefnar stćrđir, menn kappkostuđu viđ ađ vera sjálfstćđir, ţéttlyndir og sjálfum sér samkvćmir. En öđru máli gegni um ţađ tímabil sem kennt er viđ hiđ póstmóderna. Á ţessu tímaskeiđi (sem nú stendur yfir) verđi sjálfsemd manna ć síđur traust, ć meira fljótandi, menn skipti um ham eins og ekkert sé. Ađalmáliđ er ađ vera kúl og slá í gegn hjá öđrum. Ekki skortir Obama kúlheit og sjálf hans hefur aldrei veriđ gefin stćrđ. Hann elst upp hjá móđurforeldrum sínum í hvítu umhverfi og er lengi vel hvítur mađur međ svarta húđ, auk ţess ađ mótast af múslimskri menningu í Indónesíu. En svo skiptir hann um ham, tekur ađ leita ađ sínum svörtu rótum og verđur nánast svertingi. Ţó altaf mađur milli vita eins og sannri póstmóderni persónu sćmir. McCain aftur á móti er gefin, móderni stćrđ enda eldri mađur, fćddur og uppalinn á tíma hins móderna, gagnstćtt Obama. Hann klárlega sjálfstćđur og var lengi ţéttlyndur en fórnađi ţeirri dyggđ fyrir völd. Slíkar fórnir hafa menn fćrt á öllum tímaskeiđum mannkynssögunnar. Valdiđ blífur.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband