KREPPAN OG TÍÐARANDINN

 

Tíðarandinn, sá skrítni fjandi, lætur ekki að sér hæða fremur en endranær. Nú bregður hann sér í líki búktalara og talar gegnum fjölda álitshafa víða um lönd. Hann lætur þá segja í kór "kreppan gefur líka möguleika, nú getum við losað okkur við gildismat efnishyggju". Einn kórfélaga, hinn frægi bókmenntafræðingur Harold Bloom, skrifaði grein nýlega í New York Times. Þar ræðir hann viðbrögð bandaríska rithöfundarins Ralph Waldo Emerson við kreppunni 1837. Emerson sagði að kreppan ætti að kenna Könum sjálfsþurftarbúskap, kenna þeim að treysta á sjálfa sig, ekki þau verðmæti sem  mölur og ryð fá grandað. Kannski landar vorir geti lært eitthvað af þeim Bloom og Emerson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband