VALDARÁNIÐ Í CHÍLE OG EFTIRLEIKUR ÞESS

Þann ellefta september verður hálf öld  liðin síðan herinn í Chíle steypti lýðræðisstjórn Salvadors Allende, forseta.

Hann  kom á einræðisstjórn herforingja sem markaði stefnu í anda markaðshygggju.  

Enginn vafi á að Bandaríkin og ekki síst CIA áttu þátt í valdaráninu og því að veikja stoðir Allendestjórnarinnar, m.a. með því að grafa undan efnahag landsins.

Enda viðurkenndi CIA að hafa vitað af  valdaráninu áður en það átti sér stað en neitar að hafa átt þátt í því.

Bandarísk þingnefnd komst að þeirri niðurstöðu að fátt benti til að CIA hafi tekið þátt  valdaráninu en víst væri um að Bandaríkin hefðu reynt að grafa undan Allende-stjórninni.

Hver veit nema þetta sé rangt og CIA hafi átt þátt í að skipuleggja valdaránið. 

Stjórn Allendes

En Allende og fylgjendur hans voru ekki hafnir  yfir gagnrýni. Hann reyndi að breyta samfélaginu allróttækt án þess að hafa meirihluta þjóðarinnar að bakhjarli.

Hann fékk jú aðeins 36% atkvæða í forsetakosningunum árið 1970. Alþýðufylking hans fékk mest 44% atkvæða í þingkosningunum vorið 1973.

Hægrimenn og bandarískir vinir þeirra héldu að Allende yrði svo óvinsæll að hann hlyti tapa næstu kosningum.

En sú staðreynd að flokkur hans bætti talsvert við sig í þingkosningunum 1973 gæti  hafa valdið því að þeir fóru að efast um það og tóku í stað þess að skipuleggja valdarán.

Það án þess að neitt benti til þess að Allende hygðist koma á kommúnísku einræði þótt þannig hugsandi menn hafi líklega mátt finna meðal stuðningsmanna hans.

Forsetinn var fremur róttækur krati en kommúnisti, eina hættan á kommúnísku einræði í Chile var sú að kommúnistar fremdu valdarán.

En mér vitanlega er ekkert sem bendir til að þeir hafi haft slíkt í hyggju.

Stjórn Pinochets og efnahagsstefna hennar

Hvað um stjórnarfarið í tíð valdaránsmanna? Frjálshyggjumenn hafi haldið efnahagsstefnu Augusto  Pinochets mjög á lofti enda fór hann í flestu eftir forskriftum Miltons Friedmans og annarra frjálshyggjupostula (lét þó eiga sig að einkavæða koparnámurnar ábatasömu).

Því er til að svara að virtur norskur hagfræðingur, Kalle Moene, segir að hagvöxtur á valdaskeiði Pinochets hafi aðeins verið um 2% að jafnaði á ári (Moene 2007).

Nóbelshagfræðingurinn  Joseph Stiglitz bendir á að eftir sjö ára friedmennsku hrundi efnahagurinn chíleski næstum árið 1982, hagkerfið dróst saman um 13.7% (!!) og fimmti hver verkamaður varð atvinnulaus (Stiglitz 2002: 114) (aðrir nefna hærri tölur, 14.3% og 23%) (sjá einnig Stefán Snævarr 2011, 4 kafla).

Milton  Friedman afsakaði  það með meintum mistökum í peningmálum, þar hafi Chílestjórn  breytt gagnstætt formúlum frjálshyggjunnar.

Eins og Steinn Steinarr orti:

       Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,

       því það er nefnilega vitlaust gefið (Steinn Steinarr           1991: 164)

 

Spurt er: Hvers vegna hefur aldrei orðið viðlíka samdráttur í velferðarríkjunum á árunum eftir stríð? Hvers vegna hefur svo mikið atvinnuleysi ekki þekkst í þeirra ranni?

Getur þetta verið ábending um að tiltölulega frjáls markaður sé ávísun á miklar sveiflur í efnahagslífinu en  blandað hagkerfi stuðli að stöðugri efnahag? Spyr sá sem ekki veit.

Stiglitz segir að eftir hrunið hafi Pinochet söðlað um og   aukið  ríkisumsvif í efnahagslífinu. Þá loksins hafi  efnahagurinn tekið við sér og verið  fremur blómlegur á síðustu sjö árum herforingjastjórnarinnar.

Naomi Klein segir að jafnvel á síðustu og bestu efnahagsárum Pinochets hafi hartnær annar hver Chílebúi verið undir fátæktarmörkum á meðan þeir ríku rökuðu saman fé.

Nú (árið 2007) sé svo komið að óvíða á jarðarkringlunni sé auði jafn misskipt og í Chíle, aðeins sjö þjóðir búi við ójafnari skiptingu (Klein 2007: 86).

Nær má geta hvort þessi misskipting hafi dregið úr valdi auðmanna og stórfyrirtækja.

Hinn frjálshyggjusinnaði Friedrich von Hayek sagði  í viðtali við chíleska blaðið El Mercurio að stundum væri einræði nauðsynlegt til bráðabirgða.

Hann vildi fremur búa í frjálslyndu einræðisríki (les: Chíle Pinochets) en ófrjálslyndu lýðræðisríki enda séu engin rakatengsl milli hugtakanna um frelsi og lýðræði (samkvæmt t.d. Sallas 1981).

 

Lýðræði, einræði, frelsi

Frjálshyggjumenn hafa löngum talið að einræði væri ekki endilega andstætt einstaklingsfrelsi. Lýðræðið geti ógnað því, t.d. ef meirihlutinn kysi að kúga minnihlutann eða ef það leiddi smám saman til aukinna ríkisafskipta.

Vandinn er sá að írski heimspekingurinn Philip Pettit teflir fram máttugum rökum gegn þessu viðhorfi. Frelsi er að hans mati forræðisleysa  (e. non-domination) (Pettit 1997: 51 og víðar).

Menn geti lifað lífi sínu óáreittir  en samt verið háðir  náð annarra manna.

Þeir síðastnefndu gætu hafa látið geðþótta sinn ráða er þeir afréðu að láta mennina í friði og gera þá þannig frjálsa að hætti frjálshyggjunnar (frjálshyggjumenn segja menn frjálsa ef enginn treður þeim um tær).

En þessir menn séu ekki raunverulega frjálsir því afskiptaleysið sem þeir búa við sé skilyrt (e. contingent), tilviljunum undirorpið. Það vildi einfaldlega svo til að ákveðnir einstaklingar ákváðu að láta þá í friði.

Þeir lúti forræði þessara einstaklinga, þeir séu upp á náð þeirra komnir og frelsi þeirra sé því takmarkað.

Þetta þýðir m.a. að menn geti ekki verið frjálsir í einræðisríki. Þótt einræðisherrann leyfi þegnum sínum allra náðarsamlegast að valsa frjálsir um þá lúti þeir eftir sem áður forræði hans.

Hugsum okkur mann sem býr í hverfi þar sem rustamenni nokkurt er forráða. En maðurinn hefur fengið að vera í friði fyrir rustanum, kannski af hreinni heppni.

Ef til vill er maðurinn slík gufa að ruddinn tekur ekki eftir honum. Eða hann er einfaldlega slægur og smjaðrar fyrir hverfis-Rambónum hvenær sem þeir hittast (sjá einnig Stefán Snævarr 2011, 8 kafli).

Sé þetta rétt þá voru íbúar Chíle ekki frjálsir um daga Pinochets þar eð herforingjastjórnin var forráða og frelsi þeirra því skilyrt.

 

Hver drap flesta miðað við höfðatölu?

„Sál felldi sín þúsund, Davíð sín  tíu þúsund“ segir á helgri bók.  

Frjálshyggjumenn hafa löngum haldið því á lofti að herforingjastjórnin í Chíle hafi „bara“  stútað um þrjú þúsund manns, kommúnistastjórn Kúbu tífalt fleiri (samkvæmt Svartbók kommúnismans, sú  bók er ekki heilög fremur en önnur rit).

Þetta eigi að sýna að hægrieinræðisstjórnir séu jafnan síður ómannúðlegar en þær til vinstri.

En þeir gleyma „afrekum“ hægrieinræðisstjórnarinnar í Argentínu sem bar ábyrgð á dauða níu þúsund til þrjátíu þúsund manns á aðeins níu árum.

Það þýðir að sú hægristjórn hafi verið jafn atgangshörð í manndrápum og kommúnistastjórnin á Kúbu.  

Hið sama gildir um  hægrieinræði Rafael Trujillo í Dóminíkanska lýðveldinu. Sú stjórn er sögð  hafa borið ábyrgð á dauða fimmtíu þúsund manns.  

Enn verra var hægrieinræði Súhartós í Indónesíu sem framdi valdarán með stuðningi Bandaríkjanna. Þessi stjórn slátraði 500000 til 1.2 milljónum meintra kommúnista á einu ári. 

Þess utan má vel kenna nasismann við hægristefnu, nasistar þjóðnýttu ekki naglaspýtu, einkafyrirtæki á borð við I.G. Farben stórgræddu á vinnuafli þræla sem SS leigði þeim (sjá t.d. Kitchen 1976).

Hitler átti það til að vegsama einkarekstur   þegar sá gállinn var á honum, nánar tiltekið „hið eilíft skapandi einkaframtak“ („…det evigt skabende, private Enkeltinitiativer“) (Hitler 1935: 11). Um morðæði nasista þarf ekki að fjölyrða.

Stjórn Pinochets kann að hafa verið skárri en sú argentínska,  og örugglega skárri en sú nasíska.

En Pinochet virðist hafa verið  þrælspilltur og auðgast með ólögmætum hætti á valdaskeiði sínu.

Alla vega má sjá að hægrimenn eru engir eftirbátar kommúnista hvað blóðþorsta varðar. Eins og Mercutio segir í Rómeó og Júlíu Shakespeares "A plague on both your houses!"

Lokaorð

Þótt stjórn Allendes væri engan veginn hafin yfir gagnrýni réttlætir það ekki afskipti Kana, valdaránið og kúgunina i kjölfari þess.

Tilraun frjálshyggjumanna til að skjóta skildi fyrir Pinochet misheppnast, örvar sannleikans fljúga í gegn.

 

Heimildir:

 

Biblían, Fyrri Samúelsbók 18 kafli https://biblian.is/biblian/fyrri-samuelsbok-18-kafli/

Hitler, Adolf  1935: Lighed giver fred (þýðandi  Clara Hammerich): København: Hasselbalch.

Kitchen, Martin 1976: Fascism. London: MacMillan Press.

Klein, Naomi 2007: The Shock Doctrine. Harmondsworth: Penguin.

Moene, Kalle 2007: ”Ubrukelige utopier”, Morgenbladet, 5 október.

Pettit, Philipp 1997: Republicanism. A Theory of Freedom and Government. Oxford: Oxford University Press.

Sallas, Renee 1981: “Friedrich von Haeyk, Leader and Master of Liberalism”, El Mercurio, 12. apríl, http://www.fahayek.org/index.php?option=com_content&task=view&id=121&Itemid=0. Sótt 3/9 2010.

Stefán Snævarr 2011: Kredda í kreppu. Frjálshyggjan og móteitrið við henni. Reykjavík: Heimskringla.

Steinn Steinarr  1991: “Að sigra heiminn”, Ljóðasafn. Vaka-Helgafell: Reykjavík, bls. 164.

Stiglitz, Joseph 2002: Globalization and its Discontents. Harmondsworth: Penguin Books.

Opinber bandarísk gögnhttps://nsarchive2.gwu.edu/NSAEBB/NSAEBB8/nsaebb8i.htm

Opinber bandarísk gögnII: https://history.state.gov/milestones/1969-1976/allende

https://en.wikipedia.org/wiki/Crisis_of_1982

https://abcnews.go.com/International/story?id=82588&page=1

https://en.wikipedia.org/wiki/Presidency_of_Salvador_Allende

https://en.wikipedia.org/wiki/Dirty_War

https://www.hrw.org/news/2005/03/16/chile-pinochet-money-laundering-exposed

https://en.wikipedia.org/wiki/Rafael_Trujillo

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Þess utan má vel kenna nasismann við hægristefnu, nasistar þjóðnýttu ekki naglaspýtu..."

Þeir þjóðnýttu *ALLT.*  Hverja naglaspýtu.  Þeir litu svo á að þeir ættu fólkið - ef menn spiluðu ekki með fóru þeir í pólitíska endurhæfingu.  Eða eitthvað þaðanaf verra.

Kínverjar eru með svipað kerfi - ekki eins, en keimlíkt.  Þeir geta alveg sagt að eitthvað sé einkaframtak, en það fær bara að vera til á meðan það er í þágu flokksins, eða í það minnsta er ekki fyrir honum.

Í raun voru fyrirtækjaeigendur í Þýzkalandi bara þannig á pappírunum, en fyrirtækin sjálf voru oftar en ekki rekin af verkalýðsfélögunum.

Ég veit ekki betur en Pinochet sé enn ágætlega liðinn í Chile.

Vegna þess að fólk fékk að vera í friði fyrir honum.  Það hefði ekki geta um frjálst höfuð strokið undir Allende.

Er ekki í lagi að fórna nokkurþúsund kommúnistum fyrir frelsi?  Ekki meta þeir mannslíf. 

Ásgrímur Hartmannsson, 9.9.2023 kl. 21:44

2 Smámynd: Stefán Valdemar Snævarr

Sérfræðingur í sögu fasismans, Bretinn Martin Kitchen,  segir í bók sinni Fascism að tveir af hverjum þremur af starfsmönnum áætlanakerfisins hafi jafnframt starfað hjá stórfyrirtækinu I.G. Farben. Áætlanirnar hafi verið gerðar í samráði við þýsku stóriðnaðarfyrirtækin og megi rekja  sveiflur í áætlunarstefnunni að miklu leyti rekja til átaka milli stórfyrirtækjanna (Kitchen 1976: 55). Annar fræðimaður, þýski útlaginn Richard Grunberger tekur í sama streng í bók sinni The Social History of the Third Reich (Grunberger 1979: 230). Þetta þýðir ekki að stórfyrirtækin hafi stjórnað nasistum eins og sumir marxistar hafa talið heldur að þau höfðu talsverð áhrif og voru ekki á valdi  nasistaflokksins. Hvaðan hefurðu þá visku að verkalýðsfélögin hafi rekið fyrirtæki á dögum nasista? Þau voru bönnuð, í stað þeirra stofnuðu nasistar félög sem bæði atvinnurekendur og starfsmenn þeirra áttu aðild að og sá meðal annars um að dæma í deilumálum milli þeirra. Staðhæfing þín um að nasistar  hafi þjóðnýtt allt er því RÖNG. Reyndar er viss sannleikskjarni í því sem þú segir um að kínverska kerfið líkist því nasíska en ég held að kinversk einkafyrirtæki séu mun áhrifaminni en stórfyrirtæki voru á dögum nasisa. Nasistar hefðu glaðst mjög yfir staðhæfingu þinni  um að í lagi hafi verið að drepa nokkur þúsund kommúnista. Andkommúnismi var ein af meginstoðum nasismans eins og skýrt kemur fram í Mein Kampf þar sem Hitler kennir kommúnismann við Gyðingdóm. Eitt af slagorðum nasista var „Ef þjóðin á að lifa verður marxisminn að deyja“. Pinochet hefði tekið undir það.

Stefán Valdemar Snævarr, 9.9.2023 kl. 22:29

3 Smámynd: Stefán Valdemar Snævarr

Téður Grunberger skrifar um þessi félög nasista í áðurnefndri bók. Hitler segir í Mein Kampf að marxisminn ógni  menningu og framtíð mannkyns enda sé hann Gyðinga-ættar (Hitler 1943: 69 og víðar). Jafnaðarstefna sé sama gyðingalega markinu brennd (Hitler 1943: 43–44 og víðar).

Hitler, Adolf 1943: Mein Kampf. München: Zentralverlag der NSDAP. https://archive.org/details/Mein-Kampf2 Sótt 8/5 2019. chrome-extension://efaidnbmnnnibpcajpcglclefindmkaj/http://www.dedokwerker.nl/copy/mein_kampf_de.pdf

Stefán Valdemar Snævarr, 9.9.2023 kl. 22:34

4 Smámynd: Stefán Valdemar Snævarr

Þú staðhæfðir án þess að geta heimilda að Pinochet væri ágætlega liðinn í Chíle, hér getur að líta niðurstöður skoðannakannana sem gerðar voru fyrir tíu árum síðanWhile three-quarters of those polled said Gen Pinochet was a dictator, 9% said he would go down as one of the greatest leaders in Chilean history.

According to the poll, 55% of Chileans regarded the 17 years of the dictatorship as either bad or very bad, while 9% said they were good or very good.

 

More than a third of those polled either had no opinion or regarded the dictatorship years as a mixture of good and bad. 

Stefán Valdemar Snævarr, 9.9.2023 kl. 22:40

5 Smámynd: Stefán Valdemar Snævarr

Heimild mín fyrir þessari skoðanakönnun er BBC https://www.bbc.com/news/world-latin-america-24014501

Skylt er að geta þess að nýleg könnun bendir til þess að viðhorfið til Pinochet áranna sé ekki eins neikvætt og það var fyrir tíu árum, sagt er að óanægja með efnahagsþróun og aukna glæpatíðni eigi þátt i því. Í þessari nýju könnun segjast 36% telja að valdaránið hafi bjargað landinu frá marxisma, 42% að það hafi eyðilagt lýðræðið. 

Stefán Valdemar Snævarr, 9.9.2023 kl. 22:45

6 Smámynd: Stefán Valdemar Snævarr

 Heimild fyrir síðustu könnun er þessi: https://apnews.com/article/chile-pinochet-dictatorship-5d500715f016804990d0898ff6d89907

Stefán Valdemar Snævarr, 9.9.2023 kl. 22:47

7 Smámynd: Stefán Valdemar Snævarr

Þú segir að menn hafi lifað óráttir í tíð Pinochets í Chíle. Tæpast gildir það um flóttamenn, pólitíska fanga, þann fjórðung fólks sem varð atvinnulaus 1982, þá sem þjáðust vegna þess að Pinochet afnam velferðarkerfið að mestu, stúdenta sem fengu vart kost á öðru en að læra viðskiptafræði og tæknifög, þann helming þjóðarinnar sem var undir fátæktarmörkum o.s.frv.

Stefán Valdemar Snævarr, 10.9.2023 kl. 11:32

8 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Málið er einfaldlega þetta:
Menn eru að átta sig á að Pinochet var hátíð við hliðina á því sem hefði gerst undir Allende.
Þeir hefði líklegast fengið sömu kreppuna á sama tíma, en þá undir járnhæl fasista sem vildu vera með puttana í öllu, en ekki einhvers hernaðar-einræðisherra sem var nokkurnvegin sama.  Það voru einka-fyrirtæki í Chile í hans tíð - eins og þú bentir sjálfur á.
Það hefðu verið flóttamenn, en fleiri.
Það hefðu verið pólitískir fangar, en fleiri.
Velferðarkerfi hefði lítið hjálpað. Langlíklegast hefði það gert illt verra með því að soga til sín pening.
Ég skil vel að þér lítist illa á Pinochet, en eftir sem áður er þetta eins og að bera saman kvef og krabbamein.

Ásgrímur Hartmannsson, 11.9.2023 kl. 00:15

9 Smámynd: Stefán Valdemar Snævarr

Þú hefur engar sannanir fyrir þessu, það er ekkert sem bendir til að Allende stjórnin hafi stefnt að einræði. Ég gleymdi í flýtinu hægrieinræði Súhartós bætti því inn hér:Enn verra var hægrieinræði Súhartós í Indónesíu sem framdi valdarán með stuðningi Bandaríkjanna. Þessi stjórn slátraði 500000 til 1.2 milljónum meintra kommúnista á einu ári. Af þessu og öðrum upplýsingum sem ég hef gefið hér að hægrimenn eru engu skárri en kommúnistar hvað blóðþorsta varðar. 

Stefán Valdemar Snævarr, 11.9.2023 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband