MARTRAÐARLANDIÐ. Leiðarvísir handa skelfdri þjóð (1. leiðarhnoða endurskoðuð)

 

Engum læsum manni dylst að ég vísa með þessu bloggheiti til bókar Andra Snæs, Draumalandið. Leiðarvísir handa hræddri þjóð. Þar leiddi Andri rök að því að stóriðja væri umhverfis- og efnahagslega skaðvænleg. Þegar ég las bókina fundust mér rökin sannfærandi en nú velti ég því fyrir mér hvort stóriðja sé ekki ein leiðanna út úr ógöngunum. Mikilvægar er þó að Íslendingar losi sig við frjálshyggju-róttæknina en frjálshyggjan er hættuleg byltingarstefna, náskyld kommúnismanum. Landinu var umsnúið á nokkrum árum, gert að lummulegri skrípamynd af Bandaríkjunum, eins og m.a. sést á því að  hin áður svo friðsama Reykjavík  varð ein hættulegasta borg Evrópu. Í ofan á lag var íslenskum hefðum hent út og landið gert hálfenskumælandi. Kom þetta í veg fyrir  þjóðargjaldþroti? Það er öðru nær, fyrirtæki sem hafa notað ensku sem vinnumál eru ekki bara gjaldþrota heldur hafa komið öllu íslenska hagkerfinu á hausinn. Ég man ekki til þess að þjóðargjaldþrot hafi orðið á Íslandi á meðan íslensk fyrirtæki létu sér móðumálið nægja.

 Hvað um það, svo hraðar voru breytingarnar í fjármálageiranum að fjármálaeftirlitið gat ekki fylgt þeim eftir, því fór sem fór. Hefðu menn farið hægar í sakirnar og ekki reynt að kaupa hálfan heiminn, ekki reynt að gera Reykjavík að amerískri skrípaborg, væri efnahagurinn sæmilega traustur og Reykjavík þolanlega friðsöm. Svo fyrsta leiðarhnoðað sem ég býð upp í leiðarvísinum er: HEFJUM ÍHALDSSEMI OG ÍSLENSKAR HEFÐIR TIL VEGS OG VIRÐINGAR, FLÝTUM OKKUR HÆGT, TEMJUM OKKUR NÆGJUSEMI, VIRÐUM VISKU NÍSKUNNAR, LOSUM OKKUR VIÐ HINA AMERÍSKU GRÆÐGI OG MARKAÐSDÝRKUN.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Stefán !

Fáu er líkara; en að ég hafi, beinlínis, sent þér hugskeyti, Stefán.

Nákvæmari; getur lýsing þín, á umturnun íslenzkra þjóðhátta vart orðið.

Með beztu kveðjum, sem ætíð /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband